Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Nató-vinir furðu lostnir

Á blaðsíðu fjögur í Morgunblaðinu í dag (þriðjudaginn 18. janúar) birtist lítil frétt með mikilli fyrirsögn. Þar er því slegið upp eins og um stórtíðindi sé að ræða að Steingrímur J. Sigfússon verði meðal framsögumanna á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs, þar sem ætlunin er að fjalla um "öryggis- og varnarmál Íslands á nýrri öld". Vissulega væri það saga til næsta bæjar ef Steingrímur væri með þessu að ganga í lið með fundarboðendum og hyggðist þannig kúvenda í afstöðu sinni til hersins og Atlantshafsbandalagsins, verður því að ætla að ýmsir hafi hrokkið við þegar þeir ráku augun í fyrirsögnina og flýtt sér að lesa meginmál fréttarinnar.

Við þann lestur kemur hins vegar í ljós, að formaður VG hefur hvergi hvikað í andstöðu sinni við hernaðarbandalagið og umsvif þess hér á landi. Þvert á móti mun hann mæta á ráðstefnuna til að rökstyðja sjónarmið sín í málinu og standa upp í hárinu á hernaðarsinnunum.

Það er ekki kyn þótt Nató-vinunum í SVS og Varðbergi bregði við þetta. Fram til þessa hefur sú hugsun að taka þátt í rökræðum við andstæðinga sína verið þeim fjarlæg. Um árabil, hafa samtök þessi neitað að taka þátt í kappræðum við friðarsinna og var það lengi vel yfirlýst stefna þeirra að koma ekki fram á fundum þar sem fulltrúum frá Samtökum herstöðvaandstæðinga var boðið að mæta. Undrun þeirra yfir því að pólitískur andstæðingur sé tilbúinn að mæta þeim á þeirra eigin heimavelli er því skiljanleg og ekki nema eðlilegt að Morgunblaðið slái því upp sem stórfrétt.

sp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur